Mánudaginn 18. maí héldu nemendur 1. - 3. bekkjar af stað í skólaferðalagið sitt. Að þessu sinni voru það 28 nemendur ásamt umsjónarkennurum og tveimur stuðningsfulltrúum sem ferðuðust saman. Nemendur mættu galvaskir í skólann þennan blíðviðris dag. Fyrst komu allir saman í skólastofunni, þar sem tekið var manntal og farið yfir dagskrá dagsins. Þá fengum við okkur staðgóðan morgunverð áður en haldið var af stað. Leið okkar lá til Sauðárkróks. Farið var frá Varmahlíð kl. 9:00. Fyrsti viðkomustaður var skólalóðin við Árskóla. Þar var nú heldur betur tekið vel á móti okkur. Kennarar og nemendur á yngsta stigi Árskóla höfðu undirbúið komu okkar. Við fengum leiðsögn um skólalóðina og börnin tóku okkar nemendur að sér í leik. Eftir um það bil hálftíma leik þökkuðum við fyrir okkur og gengum upp í Litla skóg. Þar sem veðrið var dásamlegt, léku börnin frjálst, fóru að vaða og léku með ýmis leikföng sem gripin voru með í ferðina. Í Litla skógi nýttum við okkur aðstöðuna og fengum nesti í aðstöðuhúsinu. Næst gengum í sundlaugina þar sem hægt var að njóta sólar og sælu í u.þ.b. klukkustund. Hádegismatinn fengum við á Kaffi Krók, en það var pizzuhlaðborð með öllu tilheyrandi, gosi, frönskum og sósu. Mikil gleði var með þessa góðu máltíð. Rútan beið okkar eftir hádegisverðinn. Á heimleiðinni var stoppað við aparóluna og leikvöllinn í Túnahverfinu og tekin góð leikstund þar. Við vorum komin heim í Varmahlíð þegar skóladegi lauk kl. 14:50. Voru börnin glöð og afar ánægð með ferðina.