Skólaferðalag 6. - 7. bekkjar

Föstudaginn 22. maí síðastliðinn fóru nemendur 6. og 7. bekkjar í skólaferðalag. Byrjað var í Kakalaskála þar sem nemendur fengu tækifæri til að sjá listasýningu og hlusta í leiðinni á Sturlungasögu. Síðan var gengið niður að grjótlistaverki sem Sigurður Hansen í Kringlumýri lét gera um Haugsnesbardaga. Mjög áhugavert og viljum við þakka Maríu og Sigurði kærlega fyrir frábærar móttökur. Eftir þá heimsókn var ekið sem leið lá út Blönduhlíð, yfir Hegranesið og stoppað á Sauðárkróki. Þar fóru nemendur í smá sjoppuleiðangur í Bláfell, nutu góða veðursins í sundlauginni á Sauðárkróki og svo var endað á pítsuhlaðborði á Hótel Varmahlíð þar sem Unnur staðarhaldari framreiddi dásemdar pítsur handa þeim. Frábær dagur þar sem veðrið lék við hvern sinn fingur.