Skólahald á fimmtudag 12. desember

Við gerum ráð fyrir eðlilegu skólahaldi á morgun, fimmtudag, þar til annað kemur í ljós. Það er viðbúið að skólaakstur verði ekki á öllum leiðum í morgunsárið en það veltur á hvernig gengur að ryðja burt þessum þunga snjó. 

Það er þó ljóst að engin danssýning verður eins og áform voru um. 

Við biðjum alla aðstandendur að fylgjast vel með tilkynningum í fyrramálið, í tölvupósti, á heimasíðu og facebook síðu skólans. Verði röskun á skólastarfi eða skólaakstri verður jafnframt send sms tilkynning, eins og venjulega þegar það gerist.