Skólahópur heimsækir 1. - 3. bekk

Í gær þrammaði skólahópur leikskólans í heimsókn til 1.-3.bekkjar þrátt fyrir erfiða snjófærð milli staða. 

Krakkarnir fóru í ýmsa leiki, tóku spil og höfðu gaman saman. Heimsóknin er enda liður í samstarfsverkefninu Gaman saman.