Skólahópur leikskólans í heimsókn

Mjög öflugt samstarf er á milli Varmahlíðarskóla og leikskólans Birkilunds sem felur m.a. í sér að skólahópur leikskólans kemur í heimsóknir í hinar ýmsu kennslustundir skólans og nemendur grunnskólans fara í heimsóknir inn á deildir í leikskólanum.
Í dag kom skólahópurinn í heimsókn til nemenda í 5. og 6. bekk þar sem nemendur buðu upp á spilakennslu. Spilaðir voru leikir eins og Veiðimaður, Ólsen Ólsen og fleiri skemmtileg spil. Mjög skemmtileg stund þar sem þau eldri hjálpa og kenna þeim yngri.