Keppendur úr Varmahlíðarskóla stóðu sig einstaklega vel í undanúrslitum Skólahreysti sem fór fram í gær á Akureyri og tryggðu sér glæsilegt 2. sæti með 48 stigum.
Liðið sýndi mikinn styrk, úthald og samheldni í keppninni og var skólunum sínum til mikils sóma.
Við erum afar stolt af keppendunum okkar og þeim árangri sem þau hafa náð.
Innilegar hamingjuóskir til keppenda og þjálfara þeirra – frábært starf!