Skólastarf eftir vetrarfrí

Nú er skólastarfið hafið aftur eftir vetrarfrí sem varð óvenjulangt fyrir nemendur vegna leka í skólanum. Næstu dagar og vikur verða áskorun fyrir okkur öll en í sameiningu munum við gera okkar besta svo að öllum líði sem best á meðan á framkvæmdum stendur. Framkvæmdir og endurbætur eru á fullu og berum við vonir til að þær taki sem stystan tíma, en það verða þó nokkrar vikur.