Skúnaskrall

Skúnaskrall – Öll saman, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, hefst með pompi og prakt 21. október nk. og lýkur 4. nóvember. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Gaman er að segja frá því að hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.

Meðal viðburða má nefna:

  • Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur.

  • Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur.

  • Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig. Ballið, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, fær DJ Sakka og Partývélina til að halda uppi stuðinu.

  • Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum.

  • Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu.

Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab. Þá verður mikið um að vera á bókasöfnum svæðisins svo nokkur dæmi séu tekin.

Nánari upplýsingar og dagskrá munu birtast á skunaskrall.is. Vakin er athygli á því að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana.

Sveitarfélagið hvetur fjölskyldur til að kynna sér dagskrána og taka þátt í viðburðum hátíðarinnar sem opnir erum öllum