Nemendur í 8. bekk tóku þátt í Pangea stærðfræðikeppninni líkt og undanfarin ár. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka. Einn nemandi í Varmahlíðarskóla, Þormóður Jón Benediktsson, komst áfram í úrslitakeppnina, en þangað komust 52 nemendur af 2432 nemendum sem tóku þátt í keppninni. Innilega til hamingju með góðan árangur.