Laugardaginn 14. mars síðastliðinn tóku fjórir nemendur úr Varmahlíðarskóla þátt í hönnunarkeppninni Stíll.
Stíll er árleg hönnunarkeppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Markmið Stíls er að hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og virkja sköpunarhæfileikana. Keppnin vekur jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar, gefur þeim kost á að koma hugmyndum sínum á framfæri og sýna afrakstur margra mánaða undirbúningsvinnu hópsins.
Rakel Sonja Ámundadóttir, Sigurbjörg Inga Sigfúsdóttir, Ólöf Helga Ólafsdóttir og Kolbrá Sigrún Sigurðardóttir tóku þátt í keppninni fyrir hönd Varmahlíðarskóla og unnu þær með þemað 18. aldar kjólastíll. Þær hafa verið í valgreininni Textíll/Stíll frá því í haust og undirbúið sig undir styrkri leiðsögn Þyrey Hlífarsdóttur textílkennara. Við óskum þeim innilega til hamingju með fallega hönnun.