Stöðu og framvindupróf

Eitt af því sem fylgir námi í grunnskóla er það að meta framfarir. Gaman getur verið að bera sig saman við aðra til þess að sjá hvernig gengur og hvort ekki miðar örugglega í rétta átt. Eitt mælitækið sem hefur bæst í safnið er Matsferill. Þar má finna könnunarpróf í lesskilningi og stærðfræði fyrir 4.-10. bekk. Próf þau verða lögð fyrir á næstu vikum og berast niðurstöðurnar í byrjun maí. Þá geta nemendur, foreldrar og kennarar kannað hvernig til hefur tekist og séð hvernig þróunin hefur verið hjá nemandanum með því að fá samanburð á hérðas- og landsvísu.

Nánar má lesa um prófin og fyrirkomulag hér.