Boðið var upp á sumarlestur nú í sumar þar sem nemendur gátu annað hvort unnið með Gúnda geithaf eða 100 bóka lesturinn. 12 nemendur í 2. - 6. bekk skiluðu inn á bókasafnið og fengu viðurkenningu fyrir það. Nemendur fengu viðurkenningarskjal og bækur að gjöf. Innilega til hamingju! Sumarlesturinn er gott tækifæri til að viðhalda lestrinum yfir sumartímann þegar skólinn er í fríi. Við hlökkum til að vera með ykkur næsta sumar.