Á morgun, föstudag, er Treyjudagurinn.
Treyjudagurinn er samstöðudagur fyrir börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Hann verður haldinn í fyrsta sinn á Íslandi föstudaginn 4. september 2026.
Þennan dag eru börn og fullorðnir hvött til að:
Klæðast uppáhaldsíþróttatreyjunni sinni í skólanum, vinnunni eða á æfingu.
Sýna börnum með krabbamein stuðning og samstöðu.
Það skiptir engu máli hvaða liði fólk heldur með – einkunnarorð dagsins eru:
„Á Treyjudeginum erum við öll í sama liði.“
Ef nemandi á ekki íþróttatreyju getur hann einfaldlega komið í öðrum uppáhaldsbol. Dagurinn snýst fyrst og fremst um þátttöku og samstöðu, ekki um sérstakan klæðnað.