Í kvöld keppir Varmahlíðarskóli til úrslita í Skólahreysti kl.19.45 í beinni útsendingu á RÚV. Er þetta 9.árið í röð sem Varmahlíðarskóli á lið í úrslitum. Keppendur í hreystigreinum eru Haraldur Hjalti og Sigurbjörg Inga. Í hraðaþraut keppa Halldór og Iðunn Kolka en þau Friðrik Logi og Marey eru varamenn liðsins. Áhorfendum heima í stofu er bent á að fylgjast með ljósbleiku stúkunni en það er sá litur sem stuðningsmönnum liðsins fékk úthlutað þetta sinnið.
Áfram Varmó!