Varmahlíðarskóli í þriðja sæti

Varmhlíðingar lentu í þriðja sæti í úrslitakeppninnar í Skólahreysti í gærkvöldi og er það besti árangur skólans.  Varmahlíðarskóli var með flest stig í fyrri hluta keppninnar  en eftir taugatrekkjandi samkeppni urðu úrslitin þau að Holtaskóli hreppti fyrsta sætið, Lágafellsskóli annað og Varmahlíðarskóli í þriðja. Til hamingju með verðlaunasætið, Halldór, Haraldur, Iðunn, Sigurbjörg, Friðrik, Marey og Lína! 

Á myndinni eru allir nemendur 7. - 10. bekkjar ásamt starfsfólki, en ómissandi hluti af Skólahreysti er stuðningsliðið sem fylgir á keppnirnar.