Varmahlíðarskóli keppir til úrslita í skólahreysti 2022

Varmahlíðarskóli sigraði 6. riðil í undankeppni skólahreystis og er því búið að tryggja sér sæti í úrslitum sem fara fram í Laugardalshöll 21. maí. Í upphafi keppni varð strax ljóst að Varmahlíðarskóli ætlaði sér sigur en við vorum efst í tveimur af fjórum einstaklingsgreinum áður en kom að hinni æsispennandi hraðaþraut sem við unnum með yfirburðum. Til gamans má geta þess að þetta er sjötta árið í röð sem skólinn tryggir sér þátttöku í úrslitum. Alls átta sinnum hefur Varmahlíðarskóli komist í úrslit af þeim tólf skiptum sem skólinn hefur tekið þátt. 

Öllum undanriðlum er nú lokið en 66 skólar tóku þátt í undankeppni. Það eru 12 skólar sem keppa til úrslita, nú þegar eru 7 skólar komnir með keppnisrétt og eru þeir: Flóaskóli, Stapaskóli, Laugalækjarskóli, Hraunvallaskóli, Holtaskóli, Varmahlíðarskóli og Dalvíkurskóli. Í dag, 6. maí, verður tilkynnt um þá fimm uppbótarskóla sem komast í úrslit. 

Við erum afar stolt af árangri okkar krakka sem hafa lagt mikið á sig á æfingum vetrarins, undir öruggri leiðsögn Línu íþróttakennara sem af miklum metnaði hefur byggt upp menningu og metnað í tengslum við skólahreysti. 

Fulltrúar skólans eru: Arndís Katla Óskarsdóttir, Hákon Kolka Gíslason, Ronja Guðrún Kristjánsdóttir og Trausti Ingólfsson. Til vara eru: Ísak Agnarsson og Bríet Bergdís Stefánsdóttir.

Við bíðum spennt eftir úrslitakeppninni, hún verður í beinni útsendingu á RÚV, 21. maí kl. 20:00. Öflug stuðningssveit unglingastigs Varmahlíðarskóla fylgir þátttakendum suður yfir heiðar og hvetur þau til dáða. Við hin sameinumst við skjáinn og sendum þeim baráttustrauma. Áfram Varmahlíðarskóli!