Nemendur í 8.bekk í Varmahlíðarskóla heimsóttu Blönduvirkjun þann 15. apríl sl. ásamt umsjónarkennara sínum, Unni Erlu Sveinbjörnsdóttur.
Lagt var af stað rétt fyrir 9 eftir að nemendur höfðu fengið sér morgunmat.
Vilhjálmur Agnarsson starfsmaður Blönduvirkjunar tók á móti hópnum og fylgdi þeim um virkjunina. Hópurinn fékk fyrst að sjá myndband um öryggisreglur Blönduvirkjunar, eftir það var hópnum fylgt áfram um stöðina. Þeim var sýnt hvar lyftan sem flytur starfsfólk milli hæða var staðsett og þeim sýnt hve langt það var niður í jörðina. Seinna, eftir að hafa skoðað sig um, fór hópurinn niður í stöðina sjálfa og var nemundunum sýnt hvar og hvernig rafmagnið verður til. Þar var rosalega mikill hávaði þannig ekki heyrðist mannsins mál. Einnig voru þeim sýndir seglar sem hjálpa til að búa til rafmagn og fleira áhugavert.
Eftir fróðlegan dag og skemmtilegan fór hópurinn aftur til baka í skólann.
Nemendur vilja þakka starfsmönnum Blöndustöðvar kærlega fyrir að taka á móti hópnum.