Vikupóstur 11. september

Komið öll sæl og blessuð!

Þessi vika leið á ljóshraða og margt um að vera hjá okkur í Varmahlíðarskóla. Í upphafi skólaárs langar okkur að biðja foreldra barna á yngsta stigi að taka umræðu um almenna hegðun og öryggisatriði í skólabílum. Mikilvægi þess að sitja í sætum með beltin spennt. Það er ágætt að ræða þetta annað slagið, flestir standa sig vel og fara eftir fyrirmælum. 

Áætlað er að hlaupa Ólympíuhlaup ÍSÍ í næstu viku, líklegast á föstudaginn en það verður þó metið eftir veðri. 

Svakalega lestrarkeppnin - Lestrarátak í 1-7. b. allra skóla á íslandi. Þessi keppni tengist læsis appinu þannig að foreldrar geta skráð allan heimalestur. Hvort sem það er nemandi sjálfur sem les, rafbækur eða ef lesið er fyrir barnið. Í fyrra lenti Varmahlíðarskóli í 9. sæti og ætlunin er að gera betur þetta árið með svífandi góðri þátttöku. Hér er tengill á síðu átaksins þar sem má finna nánari upplýsingar. Ef þið lendið í vandræðum með læsisappið, endilega hafið samband og við hjálpum ykkur.

Nemendur Unglingastigs eru um þessar mundir að kjósa til nemendaráðs en það kemur endanlega í ljós í næstu viku. 

Ungmennaþingið sem 10. bekkur ætlar að sækja í FNV þann 17. sept. næstkomandi mun standa frá 9,30 - 13,30 svo nemendum verður keyrt í Krókinn og heim aftur áður en skólabílar fara heim. 

Á fimmtudaginn var gulur litur ríkjandi hér innanhúss. Sá dagur er tileinkaður sjálfsvígsforvörnum og sjálfsyrkju. Nemendur unnu allir verkefni í tengslum við þennan dag.  Nemendur á unglingastigi skildu eftir “post it” gula miða um allt hús með upplífgandi og skemmtilegum orðum fyrir okkur hin.  10. bekkur fór um húsið og tók myndir af nemendum og starfsfólki - afraksturinn má sjá á instagram reikningnum nemo_varmo.  Oft þarf ekki mikið til að hafa áhrif á samferðarfólk, stundum nægir bara að brosa og vera vinsamlegur. 

Sólarkveðjur,

Gunna