Í þessari viku komu lestrarvinir í heimsókn í Varmahlíðarskóla, erum við ævinlega þakklát fyrir þeirra innlegg og aðstoð. Einnig hafa verið að koma einstaklingar í viðtöl hjá Margmiðlunar vali sem er að safna upplýsingum um Varmahlíðarskóla - frá skóflustungu til dagsins í dag. Þetta verkefni verður betur kynnt síðar. Mánudaginn næsta er dagur íslenskrar tungu, þá er ýmislegt um að vera inn í bekkjunum. Einnig verður samvera í Setustofunni þar sem 1-7. b. verða með undirbúin atriði, Tónkór Tónlistarskólans syngur og í lokin verður sameiginleg söngstund. Klukkan 20 þetta sama kvöld verður dagskrá á Löngumýri þar sem nemendur 7.b. kynna dagskrá kvöldsins.
Þriðjudag fer 10.b. í heimsókn til eldri borgara klúbbsins niður á Löngumýri.
Vetur konungur hefur sýnt sig og því gott að minna á að börnin séu vel útbúin. Hlý föt, utanyfirbuxur og jafnvel gallar hjá þeim yngri, húfur og vettlingar. Einnig væri mjög gott ef nemendur gætu verið með þurrt sokkapar í töskunni.
Bestu kveðju til ykkar