Þann 1. desember er dagur tónlistarinnar, að þessu sinni er lag dagsins “Syngdu” sem Memfismafían flytur, ótrúlega fallegt lag og textinn frábærlega vel samin af Braga Valdimari Skúlasyni sem á bæði texta og lag. Við ætlum að syngja það saman á mánudaginn klukkan 10 í setustofunni þannig að það væri gott að æfa sig á því um helgina - hlusta í bílnum eða hvað annað sem hentar.
Á miðvikudaginn kemur FNV að hitta 10.b. Sama dag kemur SSNV að kynna niðurstöður þings Ungmenna á Norðurlandi Eystra sem var í haust.
Á fimmtudaginn verður ritsmiðja fyrir unglingastig eftir hádegi til skólaloka á vegum Skálda í skólum. Þau kom í heimsókn Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Eggertsson sem eru bæði barnabókahöfundar. Fyrst verður kynning og síðan vinna þau verkefni sem með nemendum unglingastigs, sem mögulega verður hægt að vinna áfram með.
Ýmislegt var líka á döfinni þessa vikuna, eins og áður. Hér er alltaf líf og fjör.
Á þriðjudaginn fór nemandi úr 10.b. á fyrsta fund Ungmennaráðs Skagafjarðar
sem er ráðgefandi vettvangur fyrir ungt fólk (14–20 ára). Ungmennaráð veitir sveitarstjórn og nefndum ráðgjöf um málefni ungs fólks. Mjög áhugaverð vinna sem hefur verið í gangi í nokkur ár í Sveitarfélaginu.
Í gær var sungið og dansað í kring um jólatréð þegar kveikt var á því þessa aðventuna. Við fengum ákaflega fallegt og milt veður, Frissi kom út með hljómborðið og spilaði fyrir dansi, kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Síðan fórum við inn í morgunmat, en Elma var búin að hita kakó og Tobba kom með snúða handa öllum úr bakaríinu. Snillingarnir í eldhúsinu voru búnar að græja allt þegar við komum inn og þar ómaði jólatónlist á meðan við gæddum okkur á kræsingunum.
Í dag erum við svo að byrja formlega að skreyta örlítið hér í skólanum. Jólalög heyrast óma um gangana, nemendur spila jólalög í tónlistartímum og söngtímum og síðan eru margir með tónlist í stofunum.

