Vorboðar

Einn af vorboðunum er árleg heimsókn Leikhópsins Lottu. Þá er sýnt í setustofu og fá elstu nemendur í leikskóla að fylgjast með ásamt yngri nemendum í grunnskóla. Áhorfendur eru því alla jafna um 50- 60 talsins.

Hópurinn hefur um nokkurt árabil heimsótt skóla víða um land um þetta leyti og fær alltaf góðar viðtökur, enda eru sýningarnar fullar af söng, gleði og glensi, eins og vorið og því eiga áhorfendur oft góðar minningar um sýningarnar og hver veit nema þeir hugsi  með sér síðar á skólagöngunni: Ég vildi að ég væri enn í yngri bekkjum og gæti fengið að horfa á sýninguna í dag.