Árshátíð 1.-5. bekkjar í Miðgarði

Árshátíð yngra stigs verður haldin í Miðgarði, fimmtudaginn 1. nóvember kl. 16:30. Nemendur 1.-5. bekkjar leika valda búta úr ævintýrum Thorbjørns Egner. Leikstjórn er í höndum umsjónarkennara. Allir velkomnir! Það verður boðið uppá kaffi og djús í Miðgarði að sýningu lokinni en áætlað er að hún taki um klukkustund.