Kjaftað um kynlíf - fyrirlestur fyrir fullorðna

Miðvikudaginn 27. mars kl. 16:30 verður Sigga Dögg kynfræðingur í Varmahlíðarskóla með fyrirlestur fyrir fullorðna um hvernig megi ræða um kynlíf við unglinga. Fyrirlesturinn er í boði Foreldrafélags Varmahlíðarskóla og eru allir foreldrar hvattir til að mæta.

Nánari upplýsingar úr auglýsingu:

Virk kynfræðsla seinkar kynferðislegri hegðun barna og gerir hana ábyrgari og öruggari þegar hún hefst. Rannsóknir styðja að virkja þurfi foreldra í samræðum við börn og unglinga um kynferðisleg málefni.

Umfjöllunarefnin verða kynfæri, kynlífsathafnir, klám og kynlífsmýtur svo fátt eitt sé nefnt. Með húmor og hreinskilni að leiðarljósi er auðveldara að ræða málefni sem mörgum þykir óþægileg og jafnvel tabú.

Markmið fyrirlestrarins er að kynfræðsla verði sjálfsagður hluti af samræðum foreldra við börn sín og að fræðslan styrki þeirra samskipti.

Foreldrum gefst kostur á að spyrja og spjalla að loknum fyrirlestri.

Um Siggu Dögg:

Sigga Dögg er með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og M.A. gráðu í kynfræði (sexology) frá Curtin háskóla í Vestur Ástralíu. Sérstaða hennar sem kynfræðari er hispurlaus og hreinskilin nálgun á kynlífi sem byggir á innlendum og erlendum rannsóknum ásamt reynslu af kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum víðsvegar um landið.