Skíðaferðir þessa vikuna

Skíðaferð frá vetrinum 2015-16
Skíðaferð frá vetrinum 2015-16

Nemendur borða morgunverð í skólanum og nesta sig. Lagt verður af stað í fjallið um kl. 9 og komið í skólann aftur fyrir heimakstur sem verður á venjulegum tíma kl. 14:55. Þeir nemendur sem eiga útbúnað, skíði eða bretti eru hvattir til að taka hann með sér og einnig lyftukort ef það er til. Nemendur fá annars lánaðan útbúnað og óvanir fá tilsögn frá starfsmönnum sem fara með í Tindastól. Við minnum á að allir komi klæddir til útiveru og skíðaiðkunar. Gott að hafa hlýja sokka, auka vettlinga og nóg af góða skapinu!