Fréttir

Skólahlaup

Alllöng hefð er fyrir því að hlaupa skólahlaup að hausti. Oft er reynt að velja bjartan og góðan haustdag en þó er ekki alltaf gott að sjá slíka daga út af löngu færi. Þó var afráðið að velja föstudaginn 23.september til hlaupsins í ár og þegar hann rann upp kom í ljós að hann hentaði einkar vel til útiveru og hlaupa, haustsvali með sólarglennum þegar leið á dag. Skólahlaupið er hluti af íþróttaviku Evrópu og hét áður Noprræna skólahlaupið. Hlaupið er 10 kílómetrar og er kapp margra að komast alla leið á sem skemmstum tíma því að eins og allir muna getur verið mun skemmtilegra að hlaupa en ganga, einkum ef veður er gott.
Lesa meira

Skólasetning 23. ágúst

Þriðjudaginn 23. ágúst verður skólasetning kl. 9:00. Viðvera nemenda er til klukkan 12:00. Skólabílar aka. Forráðamenn eru velkomnir með sínum börnum.
Lesa meira

Óskilamunir eftir skólaárið

Nokkuð er um óskila fatnað eftir skólaárið. Endilega nálgist það sem þið kannist við.
Lesa meira

Skólaferðalag 1. - 4. bekkjar

Í dag, þriðjudag, fóru nemendur í 1. - 4. bekk í skólaferðalag á Hofsós.
Lesa meira

Kartöflugarðurinn tekinn

Það gekk mikið á í heimilisfræðitímum s.l. mánudag en þá græjuðu 6. bekkingar kartöflugarð fyrir Varmahlíðarskóla klárann til niðursetningar, undir öruggri stjórn Sigfríðar heimilisfræðikennara. Í kjölfarið mættu 4. bekkingar og settu niður kartöflurnar. Veðrið var frábært og virtust allir hafa gaman og gott af. Nú er svo bara að bíða og sjá hvernig uppskeran tekst til í sumar!
Lesa meira

Útieldun

Í dag, 17.maí, voru nemendur í 1. - 4. bekk í útieldun í útikennslutímanum.
Lesa meira

Skólaslit mánudaginn 30. maí

Við vekjum sérstaka athygli á því að skólaslit verða mánudaginn 30. maí kl. 17:00 í Miðgarði. Þar munu allir nemendur skólans fá afhent vitnisburðarblöð sín og foreldrar og aðrir aðstandendur eru velkomnir. Boðið verður uppá kaffi í Varmahlíðarskóla að lokinni athöfn.
Lesa meira

Skólaslit mánudaginn 30. maí

Við vekjum sérstaka athygli á því að skólaslit verða mánudaginn 30. maí kl. 17:00 í Miðgarði. Þar munu allir nemendur skólans fá afhent vitnisburðarblöð sín og foreldrar og aðrir aðstandendur eru velkomnir. Boðið verður uppá kaffi í Varmahlíðarskóla að lokinni athöfn. Þetta er breyting frá því sem áður var áætlað í skóladagatali, skólaslitin eru færð fram um einn dag, með samþykki og í samráði við skólaráð.
Lesa meira

Innritun nemenda fyrir næsta skólaár

Innritun nemenda í 1. bekk Varmahlíðarskóla skólaárið 2022-2023 er hafin (börn fædd 2016). Innritun fer fram með rafrænt, með því að smella á eftirfarandi hlekk og fylla út innritunareyðublaðið Innritun nemenda. Einnig bendum við á rafræna skráningu í frístund fyrir næsta skólaár. Aðstoð eða nánari upplýsingar er hægt að fá hjá skólaritara.
Lesa meira