25.01.2023
Nú á dögunum færði Kvenfélag Akrahrepps skólanum 3 vöfflujárn að gjöf. Þau koma sér vel í heimilisfræðistofunni og mötuneytinu. Færum við félaginu góðar þakkir fyrir.
Lesa meira
19.01.2023
Þriðjudaginn 31.janúar er komið að samráðsdegi foreldra, kennara og nemenda. Þar verður farið yfir námsmat, námsstöðu og horft fram á veginn. Gert er ráð fyrir 15 mínútna samtali. Undanfarin misseri hafa þessi samtöl flest farið fram í gegnum fjarfundabúnað af einhverju tagi en þess er óskað að þau fari nú fram í skólanum.Þann dag verður 9.bekkur með vöfflusölu frá kl. 10-14 og verður því hægt að staldra við og ræða um daginn og veginn yfir kaffi.
Vafflan verður seld á 500 krónur.
Skráning verður með hefðbundnu sniði í gegnum Mentor og verður póstur sendur fljótlega til áminningar.
Lesa meira
18.01.2023
Nemendur 10. bekkjar munu fara um sveitina í næstu viku, koma við bæjum og safna dósum í fjáröflunarskyni fyrir útskriftarferð sína.
Lesa meira
12.01.2023
Í dag, 12. janúar er Ljósadagur í Skagafirði.
Lesa meira
09.12.2022
Í gær, fimmtudag, var haldin danssýning í íþróttahúsinu.
Lesa meira
05.12.2022
Næstkomandi fimmtudag verður danssýning og bingó í Varmahlíðarskóla.
Danssýningin hefst kl. 14:10 í íþróttahúsi en nemendur sýna þá afrakstur danskennslu þessarar viku.
Eftir sýninguna verður kaffisala í matsal skólans.
Kl. 16:00 hefst bingó 10.bekkjar, í boði eru veglegir vinningar sem nemendur hafa haft veg og vanda að safna.
Lesa meira