Fréttir

Bleiki dagurinn 2026

Það ríkti mikil gleði og bleikur litur í öllum hornum skólans þegar við fögnuðum Bleika deginum 2026. Bleiki dagurinn er árlegur og mikilvægur viðburður þar sem við sýnum samstöðu í baráttunni gegn krabbameini, styðjum við þá sem eiga um sárt að binda og söfnum áheitum til góðs málefnis. Allir nemendur og starfsfólk skólans mættu í einhverju bleiku og sýndu lit. Eftir löngu frímínúturnar tókum við okkur til, nemendur og starfsfólk leik, - grunn, - og tónlistarskólans, fórum út og mynduðum risastóra bleika slaufu saman! Það var magnað sjónarspil og frábær samvinna. Hátíðarhöldunum lauk þó ekki þar því eftir hádegið héldum við í Miðgarð þar sem tónlistarmaðurinn Páll Óskar mætti á svæðið og tók lagið! Var það gjörningur í tilefni af Skúnaskralli sem er nú í gangi. Húsið fylltist af dansi, söng og ótrúlegri orku sem smitaði frá sér til allra viðstaddra. Það skemmdi nú ekki fyrir að allir sem vildu gátu fengið sjálfu með Palla. Þetta var algjörlega frábær dagur frá upphafi til enda, fullur af samstöðu, gleði, samveru og bleikum kærleika. En eins og segir í textanum Allt fyrir ástina; "Út með hatrið, inn með ástina".
Lesa meira

Leikfangadagur

Daginn fyrir haustfrí var leikfangadagur í skólanum. Þann dag mættu nemendur með sín uppáhaldsleikföng og kenndi ýmissa grasa í því. Það var komið með dúkkur, kaffihús, fjarstýrða bíla og meira að segja fjarstýrðan dróna sem vakti mikla lukku.
Lesa meira

Skúnaskrall í Varmahlíðarskóla

Skúnaskrall - Varmahlíðarskóla Þórunn Rakel verður með ritsmiðju á miðstigi fyrir hádegi miðvikudaginn 28. okt Felix Bergsson verður hjá okkur eftir hádegi sama dag og kynnir bók sína fyrir 4-7. bekk. Hlökkum mjög til að fá þau í heimsókn ;o)
Lesa meira

Svakalega lestrarkeppnin - úrslit

Úrslit úr Svakalegu lestrarkeppninni voru tilkynnt núna um hálfellefuleytið. Tæplega 22.400 börn í 108 skólum tóku þátt og lásu í næstum 12,4 milljón mínútur á þremur vikum. Það er með mikilli gleði tilkynnt að Varmahlíðarskóli lenti í 3.sæti!! Nemendur lásu að meðaltali 1111 mínútur á nemanda á þessum þremur vikum. Vel gert! Innilega til hamingju með árangurinn og áfram lestur :)
Lesa meira

Páll Óskar heimsækir Varmahlíðarskóla

Miðvikudaginn 21. október heimsækir Páll Óskar Varmahlíðarskóla. Við ætlum að syngja saman í Miðgarði kl. 13:00-14:00. Meðal annars ætlum við að sygngja lagið Eitt af blómunum en innihald textans tengist Baráttudegi gegn einelti. Heimsókn Páls Óskars er liður í Skúnaskralli á vegum barnamenningarhátíðar SSNV. Nemendur og starfsfólk skólans eru búin að æfa lagið og er mikil tilhlökkun að syngja með poppgoðinu. Sama dag er bleikur dagur í skólanum og við ætlum að bæta við smá glimmeri. Tjúllað stuð!!
Lesa meira

Skúnaskrall

Skúnaskrall – Öll saman, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, hefst með pompi og prakt 21. október nk. og lýkur 4. nóvember. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Gaman er að segja frá því að hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar. Meðal viðburða má nefna: Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur. Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur. Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig. Ballið, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, fær DJ Sakka og Partývélina til að halda uppi stuðinu. Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum. Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu. Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab. Þá verður mikið um að vera á bókasöfnum svæðisins svo nokkur dæmi séu tekin. Nánari upplýsingar og dagskrá munu birtast á skunaskrall.is. Vakin er athygli á því að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana. Sveitarfélagið hvetur fjölskyldur til að kynna sér dagskrána og taka þátt í viðburðum hátíðarinnar sem opnir erum öllum
Lesa meira

Átta Helgur!

Nú á haustdögum urðu ýmsar hræringar í starfsmannahóp Varmahlíðarskóla og ekkert óeðlilegt við þær breytingar. Þó má telja sérstakt að um þessar mundir finnist átta Helgur í hópnum sem telur 34 starfsmenn! Þessar tölur mætti nota í stærðfræði handa nemendum í prósentureikningi Á myndinni eru frá vinstri: Helga Sig, Guðrún Helga, Helga Rós, Helga Rós, Helga Rósa, Helga Þorbjörg, Þuríður Helga og Helga Sjöfn.
Lesa meira

Vikupóstur 9. október

Komið öll sæl og blessuð Nokkrar dagsetningar framundan: 9.-12. okt. fundarbókanir á Mentor 14. okt. leikfangadagur í skólanum og LAN+gistinótt hjá Húsi Frítímans (unglingastig) 15.-16. vetrarfrí 19. okt. starfsdagur - Frístund lokuð 20. okt. samráðsdagur - Frístund lokuð Næsta vika er skert vegna þess að framundan er vetrarfrí 15.-16. október. Eftir þá helgi verður einn starfsdagur og þá er frí hjá nemendum. Þriðjudaginn 20. október verða síðan foreldraviðtöl eða Samráðsdagur eins og við köllum daginn, þá funda foreldrar og börn með umsjónarkennara til að taka höndum saman um velferð og framgang nemandans í lífi og starfi. Nemendur 9. bekkjar safna sér fyrir skólaferðalagi og verða með vöfflusölu í setustofunni, við hvetjum ykkur til að styrkja þau. Bókasafnið verður einnig opið þann dag. Við hvetjum ykkur til að ræða við börnin ykkar um skólann og mæta örlítið undirbúin til leiks. Búið er að opna fyrir fundarbókanir á Mentor og það lokast fyrir bókanir á miðnætti mánudaginn 12 október. Aðrir kennarar, stuðningshetjurnar okkar og síðast en ekki síst skólaliðar starfa í skólanum þennan dag ef einhver þarf að ræða málin. Skrifstofan er alltaf opin hjá skólastjórnendum, ritara og húsverði. Miðvikudaginn 21. okt er síðan venjulegur skóladagur samkvæmt stundaskrá og leikfangadagur. Græn vika er rétt yfirstaðin þar sem var farið yfir flokkunarmál, matarsóun, náttúruvernd og margt, margt fleira. Skemmtileg verkefni í gangi núna en þetta er vinna sem þarf alltaf að taka fyrir reglulega í einhverri mynd . Næstu viku tökum við vel á móti kennaranema sem kemur í heimsókn til okkur á unglingastigið. Við erum gríðarlega stolt og ánægð að fá til okkar kennaranema. Síðastliðna viku fengum við heimsókn frá Háskólanum á Akureyri. Verið var að skoða starf okkar í Varmahlíðarskóla í tengslum við kennsluaðferðina Byrjendalæsi á yngsta stigi og var úttektaraðili gríðarlega ánægð með jákvæðan skólaanda, áhugasama nemendur og skemmtilega nálgun kennara á viðfangsefnum. Kær kveðja, Skólastjórnendur.
Lesa meira

Íslandsmeistarar í pílu

Nemendur úr Varmahlíðarskóla, Birna Guðrún og Gerður Júlía, eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í liðakeppni í pílu U18 í stúlknaflokki. Einnig vermdu Varmhlíðingar annað sætið, en það voru þær Þórdís og Emma. Stelpulið Pílukastfélagsins, Birna, Gerður, Emma og Þórdís enduðu jafnframt sem stigahæsta félagið í kvennaflokki. Innilegar hamingjuóskir til ykkar stelpur! Virkilega vel gert! Sjá frétt Pílukastfélagsins; Í stúlknaflokki átti PKS eftirminnilega helgi. Birna og Gerður urðu Íslandsmeistarar í liðakeppni U18 kvenna eftir sigur á Emmu og Þórdísi í afar spennandi og jöfnum úrslitaleik. Það verður vart mikið betra fyrir félagið en að eiga bæði liðin í úrslitaleiknum. Emma og Þórdís eiga einnig sérstakt hrós skilið. Þetta var fyrsta stóra mótið þeirra beggja og þær sýndu miklar framfarir eftir því sem leið á helgina. Það var greinilegt að sjálfstraustið og leikurinn óx með hverjum leik. Stelpulið PKS, skipað þeim Birnu, Gerði, Emmu og Þórdísi, endaði jafnframt sem stigahæsta félagið í kvennaflokki og hlaut bikar fyrir þann árangur.
Lesa meira