21.04.2026
Nemendur í 8. - 10. bekk fóru í skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar Háskólalestin frá Háskóla Íslands var í Árskóla dagana 16.–18. apríl. Háskólalestin er metnaðarfullt verkefni frá Háskóla Íslands þar sem markmiðið er að efla áhuga nemenda á vísindum, fræðum og háskólanámi með lifandi og fjölbreyttri kennslu.
Háskólalestin býður upp á kennarasmiðjur og fjölbreytt námskeið fyrir nemendur á unglingastigi Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum fræðasviðum með virkri þátttöku og skemmtilegum verkefnum. Námskeið sem nemendur geta valið úr eru:
Blaða- og fréttamennska
Tilraunastofa í eðlisfræði
Vísindi bleikjunnar - slepjulegt og saltað
Hugrekki í hegðun
Íþrótta- og heilsufræði
Japönsk fræði
Skurðlækingar
Sjúkraþjálfun
Stjörnufræði
Skapandi tæknismiðja
Fallbyssu skotkeppni
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Háskólalestarinnar:
https://haskolalestin.hi.is/is
Lesa meira
16.04.2026
Árshátíð yngsta - og miðstigs verður í Menningarhúsinu Miðgarði miðvikudaginn 22. apríl kl. 13. Allir velkomnir.
Lesa meira
08.04.2026
Á morgun fimmtudaginn 9.apríl ætlum við í Varmahlíðarskóla að klæðast regnbogans litum í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu 2. apríl síðastliðinn.
Fögnum við fjölbreytileika einhverfurófsins með öllum regnbogans litum.
Einhverft fólk er allskonar, rétt eins og annað fólk og hefur einhverfusamfélagið valið sér eilífðarmerkið í regnbogalitunum, til að tákna óendanlega fjölbreytni hópsins.
Lesa meira
26.03.2026
10. bekkur þreytir nú íþróttamaraþon í íþróttahúsinu. Löng hefð er fyrir þessu og hefur íþróttamaraþonið verið haldið sem hluti af fjáröflun elstu nemenda fyrir útskriftarferð þeirra til Danmerkur, venjulega vikuna fyrir páskafrí. Vikurnar fyrir hafa nemendur verið búnir að safna áheitum hjá fyrirtækjum. Dagskráin er mjög fjölbreytt og hafa allir nemendur og starfsfólk skólans tekið þátt í leikjum og dansi með þeim. 10. bekkur keppti einnig á móti starfsmönnum í bandí og bauð starfsfólki upp í dans. Næstu 24 klukkutímana munu þau meðal annars spila fótbolta, synda, hjóla á þrekhjóli, dansa, gera teygjur og margt fleira. Við viljum koma á framfæri miklum þökkum til allra þeirra sem styðja nemendur með áheitum, gjöfum, þátttöku og mörgu fleiru.
Lesa meira
25.03.2026
Dagur flogaveikra, einnig þekktur sem Fjólublái dagurinn, er haldinn árlega þann 26. mars til að auka vitund og fræðslu um flogaveiki. Markmiðið er að fræða almenning, draga úr fordómum og styðja við þá sem greinst hafa, oft með því að klæðast fjólubláu.
Lesa meira
19.03.2026
Nemendur 4.-5. bekkjar fengu skemmtilega sendingu frá einu foreldri sem vinnur á togara: hinar ýmsu tegundir sjávarlífvera sem slæðst höfðu í net. Þær voru síðan nýttar til náms í skólanum.
Það var mikil eftirvænting á föstudagsmorgni þegar skólinn ilmaði af sjávarafurðum (fæstum til mikillar ánægju) og nemendum bauðst að skoða 11 tegundir sem fengnar voru frá föður nemanda sem vinnur á togara. Þetta tengdist þemavinnu nemenda um hafið sem nemendur í 1.-5. bekk hafa verið að vinna með síðustu misseri.
Við fengum í hendurnar tindabykkju, steinbít, hlýra, grásleppu, lúðu, þorsk, ýsu, karfa, blágómu, krossfiskar og eitt pétursskip. Nemendur þurftu að greina tegundirnar með hjálp fræðibóka. Lyktina lagði yfir skólann svo það var varla hægt að láta þetta fara fram hjá sér. Allir nemendur skólans komu við og fengu að líta herlegheitin augum. Starfsfólk tók sér einnig tíma úr degi til og leit við. Fullorðna fólkið var spennt fyrir pétursskipinu sem fæstir höfðu séð en nemendum fannst vitanlega blágóman vígalegust vegna stærðar hennar. Í lok dags voru tveir fiskar krufnir og mátti nema að hér væru sveitakrakkar á ferð miðað við áhuga, spennu og almenna jákvæðni þegar fiskarnir voru slægðir - greinilega ýmsu vön.
Virkilega gott að eiga góða að en umsjónarkennari telur að þetta verði ein af þessum stundum sem þessir nemendur eiga eftir að muna vel eftir í lok sinnar grunnskólagöngu.
Lesa meira