29.04.2026
Í dag, miðvikudaginn 29. apríl, mun lið Varmahlíðarskóla keppa í Skólahreysti á Akureyri.
Keppendur eru:
Fjölnir Þeyr Marinósson og Erna María Guðmundsdóttir hraðabraut.
Haraldur Hjalti L. Bjarnason og Sigurbjörg Inga Sigfúsdóttir hreystiþrautir.
Friðrik Logi Haukstein og Edda Einarsdóttir varamenn.
Keppnin er kl. 17 og er sýnd í beinni útsendingu á Rúv.
Við hvetjum alla til að koma saman við skjáinn og hvetja okkar fólk.
ÁFRAM VARMAHLÍÐARSKÓLI!!
Lesa meira
29.04.2026
Á vordögum er hefð fyrir því að nemendur í 7. bekk eigi notalega stund með eldri borgurum á Löngumýri. Það er alltaf jafn gaman að sjá yngri og eldri kynslóðir tengjast með þessum hætti en börnin lesa upp valin ljóð, spila, spjalla og fá að lokum dýrindis veislu í boði eldri borgara.
Börnin stóðu sig með miklum sóma og var hrósað margoft fyrir upplesturinn.
Lesa meira
27.04.2026
Árshátíð yngsta og miðstigs fór fram í Menningarhúsinu Miðgarði síðasta vetrardag. Leikritið Abbababb var sett á stokk en það er eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktan sem Dr. Gunni.
Nemendur frá 1.- 7. bekk tóku þátt í uppsetningunni og var æfingaferlið afar skemmtilegt þar sem nemendur fengu tækifæri til að semja dansa við lögin, leika hunda og túrista, vera smábarn í bleyju og fá tilfinningu fyrir því hvernig er að vera hrekkjusvín (sem þau mæla ekki með). Nemendur í 1. - 3. bekk hófu leikinn á íþróttafjöri þar sem þau fóru á kostum í allskyns hoppum og stökkum, kollhnísum og fleiru skemmtilegu. Á eftir var svo hafist handa við leikritið Abbababb.
Æfingaferlið byrjaði í febrúar og lögðu nemendur hart að sér í að læra línur, vera með í persónusköpun og leika saman á sviði.
Afraksturinn fór svo fram á síðasta vetrardegi þar sem nemendur stóðu sig frábærlega og var mikið hlegið og klappað í salnum. Einnig erum við ánægð með hversu margir sáu sér fært í að koma og horfa en talið er að um 270 manns hafi verið í salnum. Á eftir var boðið upp á kaffi í Miðgarði þar sem meðal annars var hægt að fá sér djús, skúffuköku og pítsusnúða útbúið af okkar frábæru matráðum í Varmahlíðarskóla.
Lesa meira
21.04.2026
Nemendur í 8. - 10. bekk fóru í skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar Háskólalestin frá Háskóla Íslands var í Árskóla dagana 16.–18. apríl. Háskólalestin er metnaðarfullt verkefni frá Háskóla Íslands þar sem markmiðið er að efla áhuga nemenda á vísindum, fræðum og háskólanámi með lifandi og fjölbreyttri kennslu.
Háskólalestin býður upp á kennarasmiðjur og fjölbreytt námskeið fyrir nemendur á unglingastigi Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum fræðasviðum með virkri þátttöku og skemmtilegum verkefnum. Námskeið sem nemendur geta valið úr eru:
Blaða- og fréttamennska
Tilraunastofa í eðlisfræði
Vísindi bleikjunnar - slepjulegt og saltað
Hugrekki í hegðun
Íþrótta- og heilsufræði
Japönsk fræði
Skurðlækingar
Sjúkraþjálfun
Stjörnufræði
Skapandi tæknismiðja
Fallbyssu skotkeppni
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Háskólalestarinnar:
https://haskolalestin.hi.is/is
Lesa meira
16.04.2026
Árshátíð yngsta - og miðstigs verður í Menningarhúsinu Miðgarði miðvikudaginn 22. apríl kl. 13. Allir velkomnir.
Lesa meira
08.04.2026
Á morgun fimmtudaginn 9.apríl ætlum við í Varmahlíðarskóla að klæðast regnbogans litum í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu 2. apríl síðastliðinn.
Fögnum við fjölbreytileika einhverfurófsins með öllum regnbogans litum.
Einhverft fólk er allskonar, rétt eins og annað fólk og hefur einhverfusamfélagið valið sér eilífðarmerkið í regnbogalitunum, til að tákna óendanlega fjölbreytni hópsins.
Lesa meira